Fréttir og nýmæli

Verðlaun fyrir blaðagreinar um heilbrigðismál.

20.11.2009

Framkvæmdastjóri heilbrigðis- og neytendamála hjá Evrópusambandinu, Androulla Vassiliou afhenti verðlaun, þann 29. október s.l., fyrir framúrskarandi blaðagreinar sem skrifaðar hafa verið um heilbrigðismál í Evrópu að undanförnu. Valið fór þannig fram að hvert aðildarríki Evrópusambandsins valdi eina grein frá sínu landi og tilnefndu höfund hennar til verðlaunanna. Veitt var viðurkenning fyrir þrjár greinar sem þóttu skara framúr. Hlutskörpust var franska blaðakonan Estelle Saget sem fjallaði um hvernig hjón takast á við geðklofa, sem annað þeirra stríðir við, í sínu daglega lífi. Greinar allra þeirra sem tilnefndir voru má lesa á vefsíðu Evrópusambandsins. Þar má finna áhugaverða umfjöllun um ýmsar hliðar heilbrigðismála.

Sjá nánar á vef Evrópusambandsins.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica