Fréttir og nýmæli

Reyklaus Evrópa 2012

8.7.2009

Þann 30. júní 2009 samþykkti framkvæmdastjórn ESB tillögu að ráðstilmælum um reyklaust umhverfi í Evrópu árið 2012.

Tilmælin til aðildarríkjanna eru í meginatriðum þrenns konar:

1. Samþykkt verði og innleidd lög um verndun borgaranna fyrir tóbaksreyk á almannafæri, vinnustöðum og í almenningssamgöngum.
2. Styrkt verði löggjöf um reyklaust umhverfi og gripið verði m.a. til aðgerða til verndar börnum fyrir reyk, fólk verði hvatt til að hætta að reykja og settar verði myndrænar viðvarnanir á allar tóbaksumbúðir.
3. Samstarf aðildarríkja ESB um sameiginlegar aðgerðir í tóbaksmálum verði aukið.


Reykingar eru helsta orsök dauðsfalla, sjúkdóma og fötlunar sem hægt er að fyrirbyggja. Í aðildarríkjum Evrópusambandsins má árlega rekja 650 þúsund dauðsföll til reykinga.

Samkvæmt mati sérfræðinga deyja árlega yfir 79 þúsund fullorðnir í 25 af löndum ESB vegna reykinga á heimilum (72,000) og vinnustöðum (7,300). Þar af 19 þúsund vegna óbeinna reykinga.

ESB leggur mikla áherslu á að tryggja framkvæmd Rammasáttmála Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um takmörkun tóbaksnotkunar (The WHO Framework Convention on Tobacco Control - FCTC). Einn liður í því er að framfylgja leiðbeiningum um vernd þeirra sem ekki reykja.

Sjá:


http://eur-lex.europa.eu/LexUriServ/LexUriServ.do?uri=COM:2009:0328:FIN:EN:PDF


Þetta vefsvæði byggir á Eplica