Fréttir og nýmæli

Evrópskt samstarf gegn krabbameinum

25.6.2009

Þann 24. júní 2009 samþykkti framkvæmdastjórn ESB orðsendingu varðandi samstarf um sameiginlegar aðgerðir gegn krabbameinum (Communication on Action against Cancer: Eurpean Partnership, COM(291) 291/4).

Samstarfið miðast við aðgerðir á evrópskum vettvangi sem ætlað er að tryggja áhrifaríkar krabbameinsvarnir um alla Evrópu. Með því að virkja til samstarfs aðila sem vinna að krabbameinsmálefnum er auðveldara að tilgreina brestina í forvörnunum, ræða þarfirnar og læra hver af öðrum.

Í Evrópu er krabbamein næst algengasta dánarorsökin næst á eftir hjarta- og æðasjúkdómum. Dánarorsök tveggja af hverjum tíu konum og þriggja af hverjum tíu körlum má rekja til krabbameinssjúkdóma. Árlega greinast 3,2 milljónir manna með þennan sjúkdóm í álfunni.

Evrópska samstarfinu gegn krabbameinum verður hleypt formlega af stokkunum á haustdögum 2009.

Sjá:

http://europa.eu/rapid/pressReleasesAction.do?reference=IP/09/996&format=HTML&aged=0&language=EN

http://ec.europa.eu/health/ph_information/dissemination/diseases/docs/com_2009_291.en.pdf


Þetta vefsvæði byggir á Eplica